Framsetning ársreiknings
Fagfjárfestasjóðsins CDO1 er í samræmi við reglur um reikningsskil
rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
Afkoma Fagfjárfestasjóðsins CDO1
árið 2006.
Lykiltölur í m.kr.
|
|
|
|
|
|
Tímabil
|
2005
|
2005
|
|
|
|
Hagnaður tímabils færður á hlutdeildarskírteini
|
111
|
55
|
|
|
|
|
|
|
Dagsetning
|
31/12/06
|
31/12/05
|
|
|
|
Eigið fé
|
985
|
879
|
|
|
|
·
Hagnaður varð af rekstri sjóðsins árið 2006 að fjárhæð 111 m.kr.
samkvæmt rekstrarreikningi, en Fagfjárfestasjóðurinn CDO1 er útgefandi
skuldabréfaflokkanna CDO1 A1, CDO1 A2, CDO1 A3, CDO1 A4, CDO1 A5, CDO1 B1, CDO1
B2, CDO1 B3, CDO1 C1, CDO1 C2 og CDO1 C3 sem skráðir eru á Kauphöll Íslands.
·
Eigið fé sjóðsins nam í lok júní 985 m.kr. skv. efnahagsreikningi
og hækkaði um 12,1% frá sama tímabili í fyrra.
·
Ársreikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun
þeirra hafi ekkert leitt í ljós sem bendir til annars en að ársreikningurinn gefi
glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2006, efnahag í lok þess og breytingu á
handbæru fé og hreinni eign sjóðsins, í samræmi við lög og settar
reikningsskilareglur.
Eigið fé Rekstrarfélags
Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili Fagfjárfestasjóðsins CDO1, þann
31.12.2006 nam 3.484 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 56,6%
en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%. Rekstrarfélag
Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og hluti af
samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans.
Hægt verður að nálgast ársreikning
félagsins frá og með 26. mars 2007 í móttöku Rekstrarfélags Kaupþings banka hf.
að Borgartúni 19, Reykjavík.
Nánari upplýsingar um ársreikning
Fagfjárfestasjóðsins CDO1 og Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. veitir Ómar
Kaldal Ágústsson, framkvæmdastjóri í síma 444-6000.