Framsetning ársreiknings ICEQ verðbréfasjóðs
er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem
settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
Afkoma ICEQ verðbréfasjóðs árið 2006.
Lykiltölur í m.kr.
|
|
|
|
|
|
Tímabil
|
2006
|
2005
|
|
|
|
(Tap), hagnaður tímabils færður á
hlutdeildarskírteini
|
382
|
588
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Dagsetning
|
31/12/06
|
31/12/05
|
|
|
|
Eigið fé
|
4.754
|
1046
|
·
Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á tímabilinu að fjárhæð 382 m.kr.
samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn
færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum ICEQ verðbréfasjóðs.
·
Eigið fé sjóðsins í lok árs nam 4.754 m.kr. skv. efnahagsreikningi
og hækkaði um 454 % frá árinu 2005.
·
Ársreikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun
þeirra hafi ekkert leitt í ljós sem bendir til annars en að ársreikningurinn
gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahag í lok þess og
breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðsins, í samræmi við lög og settar
reikningsskilareglur.
Eigið fé Rekstrarfélags
Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili ICEQ verðbréfasjóðs þann 31.12.2006 nam
3.484 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er
samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 56,6% en samkvæmt lögunum má hlutfallið
ekki vera lægra en 8,0%. Rekstrarfélag
Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og hluti af
samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans.
Hægt verður að nálgast ársreikning
sjóðsins frá og með 26. mars 2007 í móttöku Rekstrarfélags Kaupþings banka hf.
að Borgartúni 19, Reykjavík.
Nánari upplýsingar um ársreikning
verðbréfasjóðsins ICEQ og Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. veitir Ómar Kaldal
Ágústsson, framkvæmdastjóri í síma 444-6000.