Markaðsfréttir
  Útgefendur
  Fréttaflokkar
  Leit
  Vefur Kauphallar
  English version
    
Fyrirtækjalisti > Nýjustu fréttir > Fréttir á ákveðnum degi > Fréttir frá tímabili
Prentvæn útgáfa
IAV
Íslenskir aðalverktakar - Árssuppgjör 2005   30.3.2006 16:10:33
Flokkur: Afkomufréttir   Skuldabréfafréttir      Íslenska
 Íslenskir aðalverktakar 12 2005.pdf
Fréttatilkynning

Hagnaður af rekstri ÍAV hf. árið 2005 að teknu tilliti til skatta nam 729 milljónum króna.

 

EBITDA  1.259 milljónir króna og veltufé frá rekstri 1.199 milljónir króna.

 

Á stjórnarfundi Íslenskra aðalverktaka hf. þann 30. mars 2006 var ársreikningur fyrir árið 2005 staðfestur.  Ársreikningur Íslenskra aðalverktaka hf. hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess.

 

 

Helstu tölur úr ársreikningi 2005   ( í þús. kr. )

 

 

S A M S T Æ Ð A

 

2005

2004

2003

2002

2001

Rekstrarreikningur

 

 

 

 

 

Rekstrartekjur

10.498.760

8.749.374

7.747.462

7.947.227

8.559.005

Rekstrargjöld

(9.240.258)

(7.932.674)

(7.115.869)

(7.425.333)

(7.543.368)

Hagnaður fyrir afskriftir

1.258.502

816.700

631.593

521.894

1.015.637

Afskriftir

(278.940)

(275.954)

(317.163)

(300.650)

(309.368)

Hagnaður fyrir fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)

979.562

540.746

314.430

221.244

706.269

Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)

(90.744)

(116.206)

463.478

36.224

(628.918)

Hagnaður fyrir áhrifa hlutdeildarfélaga

888.818

424.540

777.908

257.468

77.351

Hagnaður af rekstri hlutdeildarfélags

0

0

17.707

89.358

24.998

Hagnaður fyrir skatta

888.818

424.540

795.615

346.826

102.349

Reiknaður tekju- og eignarskattur

(160.113)

(72.921)

(133.419)

(76.127)

79.441

Hagnaður ársins

728.705

351.619

662.196

270.699

181.790

Efnahagsreikningur

 

 

 

 

 

Eignir:

 

 

 

 

 

Fastafjármunir

3.092.204

1.711.239

6.110.006

3.601.463

3.634.369

Veltufjármunir

5.563.610

6.807.466

6.928.829

5.227.996

4.639.987

Eignir alls

8.655.814

8.518.705

13.038.835

8.829.459

8.274.356

Eigið fé:

 

 

 

 

 

Eigið fé samtals

2.862.910

3.124.204

7.010.591

3.309.063

3.094.681

Skuldir:

 

 

 

 

 

Skuldbindingar

512.449

434.300

1.106.893

327.029

244.426

Langtímaskuldir

1.703.048

2.926.533

3.612.244

2.380.214

2.281.402

Skammtímaskuldir

3.577.407

2.033.668

1.309.107

2.813.153

2.653.847

Skuldir samtals

5.792.904

5.394.501

6.028.244

5.520.396

5.179.675

Skuldir og eigið fé samtals

8.655.814

8.518.705

13.038.835

8.829.459

8.274.356

Kennitölur

 

 

 

 

 

Veltufé frá rekstri

1.199.516

566.985

507.517

551.472

666.003

Handbært fé frá rekstri (til rekstrar)

546.276

1.064.909

1.841.819

(421.730)

(309.969)

Fjárfestingar í fastafjármunum

1.683.694

424.667

(1.409.388)

251.680

149.887

Veltufjárhlutfall

1,56

3,35

5,29

1,86

1,75

Eiginfjárhlutfall

33,1%

36,7%

53,8%

37,5%

37,4%

Innra virði

2,16

2,36

5,30

2,50

2,34

Afkoma á hverja krónu nafnverðs

0,55

0,27

0,50

0,20

0,14

Ávöxtun eigin fjár

24,6%

6,5%

19,8%

8,8%

6,0%

Meðalfjöldi starfsmanna

448

458

496

484

643

 

 

Rekstur á árinu 2005

Rekstrartekjur samstæðu Íslenskra aðalverktaka hf. námu 10.498 milljónum króna á árinu 2005.  Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) var 1.259 milljónir króna. 

Afskriftir ársins námu 279 milljónir króna.  Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta nam 980 milljónum króna á árinu.  Hagnaður félagsins fyrir skatta, að teknu tilliti til fjármagnsliða nam 889 milljónum króna, en fjármagnsliðir voru nettó neikvæðir um 91 milljónir króna.  Að teknu tilliti til reiknaðra skatta nam hagnaður félagsins 729 milljónum króna á árinu 2005.

 

Efnahagur

Heildareignir Íslenskra aðalverktaka hf. og dótturfélaga námu 8.656 milljónum króna í lok desember  2005.  Heildarskuldir samstæðunnar voru 5.793 milljónir króna og bókfært eigið fé þann 31. desember 2005 var 2.863 milljónir króna.  Eiginfjárhlutfall var því 33%. 

 

Sjóðstreymi

Veltufé samstæðu Íslenskra aðalverktaka hf. frá rekstri á árinu 2005 var 1.199 milljónir króna.  Handbært fé í lok desember 2005 var 198 milljónir króna og veltufjárhlutfall var 1,56.

 

Starfsemi ÍAV árið 2005 / framtíðarhorfur

Vel gekk að afla félaginu nýrra verkefna á árinu 2005 auk þess sem áfram var haldið með verkefni frá fyrra ári.  Talsverð aukning var á íbúðabyggingum félagsins og gekk félaginu einnig vel að afla verka á tilboðsmarkaði.

 

Á undanförnum árum hafa verkefni félagsins í varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli farið minnkandi á sama tíma og verkefni á almennum verktakamarkaði hafa margfaldast.  Á árinu 2005 var framlegð rekstrar af starfsemi félagsins innan varnarsvæða einungis um 3% af heildarframlegð félagsins.  Nú liggur fyrir að varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli verður væntanlega að mestu lokað síðar á árinu en jafnframt er ljóst að það hefur óveruleg, ef nokkur áhrif á rekstur ÍAV og eru engar uppsagnir starfsmanna vegna þeirra breytinga fyrirsjáanlegar.

 

Hjá Íslenskum aðalverktökum hf. og dótturfélögum þess störfuðu að meðaltali  448 starfsmenn á árinu 2005 auk starfsmanna undirverktaka sem skipta hundruðum.

 

Stjórnendur ÍAV sjá veruleg og áhugaverð tækifæri á næstu árum til áframhaldandi sóknar og aukinna umsvifa í starfsemi félagsins og fjölþættingar á rekstri.  Félagið hefur yfir að ráða fjölmörgum byggingarlóðum og skapar það félaginu áhugaverð verkefni í nánustu framtíð.  Sala á íbúðahúsnæði hefur gengið vel það sem  af er ári 2006.  Þá hefur félaginu einnig gengið vel að afla sér nýrra verkefna á tilboðsmarkaði það sem af er ári 2006 og ber þar hæst byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhúss við Reykjavíkurhöfn og tengdra bygginga, en á næstu 4-6 árum verður bylting í uppbyggingu miðborgar Reykjavíkur og þar verður ÍAV í forystu um verklegar framkvæmdir.

 

ÍAV hf. vinnur, auk þess sem að framan er talið, að fjölda áhugaverðra stórverkefna bæði sem verktaki fyrir aðra en einnig við uppbyggingu á atvinnu- og íbúðarsvæðum fyrir eigin reikning til endursölu og/eða útleigu.

 

 

Nánari upplýsingar:

Gunnar Sverrisson – forstjóri  s: 530 4200


Til baka