Dótturfélag Dagsbrúnar, Daybreak
Acquisitions Limited (Daybreak), hefur gert öllum hluthöfum í breska prent- og samskiptafyrirtækinu
Wyndeham Press Group (Wyndeham) yfirtökutilboð á 155 pens á hlut. Samkvæmt
tilboðinu er fyrirtækið metið á um 80,6 milljónir punda. Meðfylgjandi er
opinber tilkynning sem birt var í Kauphöllinni í London (LSE) varðandi
yfirtökutilboðið.
Helstu atriði varðandi yfirtökutilboðið:
·
Tilboðsgengi
er 155 pens á hvern hlut í Wyndeham.
·
Stjórn
Wyndeham hefur einróma samþykkt yfirtökutilboðið og mun mæla með því við
hluthafa í Wyndeham að þeir samþykki það.
·
Tilboðsfjárhæð
er alls 80,6 milljónir punda (ISK 10,034 milljarðar)
·
Hluthafar
hafa frest til 14. apríl 2006 til að samþykkja tilboðið, nema tilboðsfrestur
verði framlengdur.
·
Yfirtökutilboðið
er háð eftirfarandi skilyrðum:
o
Gild
samþykki fáist fyrir a.m.k. 90% af nafnverði hlutafjár í Wyndeham.
o
Að
bresk samkeppnisyfirvöld geri ekki athugasemdir við tilboðið.
o
Önnur
skilyrði sem gilda almennt um yfirtökutilboð í bresk almenningshlutafélög.
Daybreak á, eða hefur fengið
skuldbindandi samþykki frá eigendum 20,3 % alls útgefins hlutafjár í Wyndeham,
um að þeir muni taka yfirtökutilboði Daybreak.
Landsbankinn og Teather &
Greenwood hafa umsjón með yfirtökutilboðinu fyrir hönd Daybreak Acquisitions
Limited, dótturfélags Dagsbrúnar hf.
“Tilboðið í Wyndeham er jákvætt
skref fyrir Dagsbrún af þremur ástæðum. Í fyrsta lagi er Wyndeham góð
fjárfesting í ljósi langrar sögu af arðsemi og vexti. Fyrirtækið hefur leiðandi
stöðu á markaði meðal annars vegna góðra viðskiptatengsla við meirihluta
tímaritaútgefanda í Bretlandi. Í öðru lagi fellur Wyndeham mjög vel að
starfsemi Dagsbrúnar og munu kaupin færa Dagsbrún ýmsan ávinning, meðal annars
áhættudreifing sem felur í sér að hluti af tekjum Dagsbrúnar mun nú koma
erlendis frá. Í þriðja lagi, munu kaupin veita okkur sterka fótfestu í
Bretlandi, þar sem við munum geta þróað enn frekar starfsemi félagsins,” sagði
Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Dagsbrúnar.
“Yfirtökutilboðið endurspeglar
sanngjarnt verð fyrir hluthafa og veitir þeim tækifæri til að uppskera hærra
verð en það sem fengist hefur í viðskiptum með bréf í Wyndeham á markaði á
tímum sífelldra breytinga í atvinnugreininni. Ég og stjórnendur Wyndeham teljum
að sem hluti af Dagsbrún muni Wyndeham njóta aukins stöðugleika og aðgangs að
fjármagni og þekkingu sem mun gera félaginu kleift að efla vöxt og frekari
framþróun til hagsbóta fyrir starfsmenn, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila,”
sagði Bryan Bedson, stjórnarformaður Wyndeham.
Um Dagsbrún
Dagsbrún hefur síðastliðin fimm ár
byggt upp umfangsmikla starfsemi í fjölmiðlun, afþreyingu, fjarskiptum, prentun
og tengdum greinum á Íslandi og Færeyjum, bæði í gegnum innri vöxt og með
kaupum á öðrum fyrirtækjum. Stjórn Dagsbrúnar hefur markað þá stefnu að víkka
þessa kjarnastarfsemi félagsins út fyrir heimamarkaðinn og er yfirtökutilboðið
í Wyndeham eitt af fyrstu stóru skrefunum í þá átt.
Dagsbrún hefur aðsetur í Reykjavík
og hefur verið skráð á aðallista Kauphallar Íslands frá júní 2001. Núverandi
markaðsverð samstæðunnar er um 34,95 milljarðar.
Um Wyndeham
Wyndeham er eitt af stærstu prentfyrirtækjum
í Bretlandi sem býður m.a. upp á víðtækar prentlausnir fyrir útgefendur,
auglýsendur og markpóst. Wyndeham var stofnað árið 1991 og varð, í kjölfar
fjölmargra sameininga og fjárfestinga, að einu fremsta fyrirtæki á sviði prentlausna í Bretlandi.
Samstæðan nær til 14 staða víða um Bretland og býður upp á samþættar heildarlausnir
fyrir viðskiptavini, allt frá hönnun, vörumerkjastjórum og forvinnu auk
heildrænna stafrænna prentlausna.
Wyndeham er einn af leiðandi aðilum
í prentun á gæðatímaritum í Bretlandi og prentar yfir 600 titla í hverjum
mánuði, auk þess að framleiða úrval prentvara, s.s. bæklinga og markpóst fyrir
stóran hóp viðskiptavina. Meðal viðskiptavina eru verslanakeðjur,
fjármálastofnanir, ferðaiðnaðurinn, bílaframleiðendur, ríkið og opinberar
stofnanir.
Fyrirtækið var skráð í bresku
kauphöllina 1991 og hefur frá því stækkað með innri vexti og yfirtökum á öðrum
félögum. Wyndeham er í dag eitt af leiðandi prent- og samskiptafyrirtækjum
Bretlands.
Velta Wyndeham var 141,3 milljónir
punda fyrir reikningsárið sem lauk 31. mars 2005, EBITDA var 19,8 milljónir
punda og hagnaður fyrir skatta var 5,7 milljónir. Fjárfestingar í varanlegum
rekstrarfjármunum námu 3.3 milljónum á tímabilinu.
Nánari upplýsingar veita:
Fyrir hönd Dagsbrúnar:
Þórdís Sigurðardóttir,
stjórnarformaður Dagsbrúnar, sími +354 660 0067
Gunnar Smári Egilsson, forstjóri
Dagsbrúnar, sími +354 821 7515
Fyrir hönd Wyndeham:
Bryan Bedson, stjórnarformaður
Wyndeham, sími +44 127 377 1123
Paul Utting, forstjóri Wyndeham,
sími +44 127 377 1123