|
|
|
|
Prentvæn útgáfa
|
|
KER-ICEX
|
|
|
Ker - Afskráning af Aðallista Kauphallarinnar |
28.5.2003 16:21:07 |
Flokkur:
Skráningar / afskráningar
|
Íslenska English
|
|
|
|
|
|
Kauphöll Íslands hefur samþykkt framkomna beiðni stjórnar Kers hf. um afskráningu hlutabréfa félagsins af Aðallista Kauphallarinnar. Bréfin verða afskráð eftir lokun viðskiptakerfisins föstudaginn 30. maí 2003. Í beiðni félagsins kemur fram að Vörðuberg ehf. og Gerðir ehf. hafa eignast yfir 98% hlutafjár í félaginu. Vörðuberg ehf. hefur jafnframt boðist til að kaupa hlut annarra hluthafa á sama verði og boðið var í yfirtökutilboði í hlutabréf Kers hf, sbr. tilkynning frá því fyrr í dag. Félagið uppfyllir ekki skilyrði til skráningar í Kauphöllinni. Afskráningin er gerð með vísan til 39. gr. reglna um skráningu verðbréfa í Kauphöll Íslands.
|
|
|