|
|
|
|
Prentvæn útgáfa
|
|
FRMH
|
|
|
Afskráning Frumherja hf. af Tilboðsmarkaði Kauphallarinnar |
28.2.2003 13:21:10 |
Flokkur:
Skráningar / afskráningar
|
Íslenska English
|
|
|
|
|
|
Kauphöll Íslands hefur samþykkt framkomna beiðni stjórnar Frumherja hf. um afskráningu hlutabréfa félagsins af Tilboðsmarkaði Kauphallarinnar. Bréfin verða afskráð eftir lokun viðskiptakerfisins í dag 28. febrúar 2003. Eins og fram kemur í tilkynningu félagsins frá því fyrr í dag hefur Sikill ehf., sem er í eigu Óskars Eyjólfssonar, framkvæmdastjóra, eignast yfir 96,88%. hlutafjár í félaginu og jafnframt farið fram á innlausn á hlut annarra hluthafa. Félagið uppfyllir ekki skilyrði til skráningar í Kauphöllinni. Afskráningin er gerð með vísan til 26. gr. reglna um skráningu verðbréfa á Tilboðsmarkað Kauphallarinnar.
|
|
|