Market news
  Issuers
  News categories
  Search
  ICEX Web
  Íslensk útgáfa
    
Issuers > Latest news > News of date > News between dates
Printable version
NYSI
Nýsir - 6 mánaða uppgjör 2006   31.8.2006 16:39:45
News categories: Corporate results   Bonds news      Íslenska
 Nýsir 06 2006.pdf
Stjórn Nýsis hf samþykkti á stjórnarfundi 31

Stjórn Nýsis hf samþykkti á stjórnarfundi 31. ágúst 2006, árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2006.

 

Fastafjármunir nema í lok tímabilsins 30.637 milljónum kr. og veltufjármunir 4.177 milljónum kr.  Eignir eru samtals  34.814 milljónir kr. Skuldir og skuldbindingar samstæðunnar nema 31.094 milljónum kr. og eigið fé í lok tímabilsins er 3.720 milljónir kr. að meðtaldri hlutdeild minnihluta.  Velta samstæðunnar á tímabilinu var 1.196 milljónir kr. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsgjöld var 403 milljónir kr. en tap varð af starfseminni sem nam samtals 937 milljónum kr.  Helsta ástæða tapsins er óhagstæð gengisþróun en gjaldfært gengistap vegna lána í erlendum gjaldmiðlum nam 688 milljónum kr.

 

Helstu lykiltölur úr samstæðuárshlutareikningi  30. júní 2006 eru birtar hér að neðan í þús. króna.:

Reksturinn á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2006

 

  

1/1 - 30/6 06

1/1 - 30/6 05

1/1 - 30/6 04

Rekstrarreikningur

(´000)

(´000)

(´000)

 

 

 

 

Rekstrartekjur

1.196.223

570.046

288.009

Rekstrarkostnaður fjárfestingaeigna

(138.928)

(42.570)

(7.991)

Laun og launatengd gjöld

(225.208)

(152.351)

(43.081)

Afskriftir

(36.564)

(12.638)

(3.135)

Annar rekstrarkostnaður

(364.343)

(141.063)

(95.599)

Matsbreyting fjárfestingaeigna

(28.147)

391.562

125.702

Rekstrarhagnaður

403.034

612.986

263.968

Hrein fjármagnsgjöld

(1.530.438)

(131.230)

(162.561)

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga

(7.332)

(830)

8.748

Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta

(1.134.736)

480.927

110.156

Reiknaður tekjuskattur

197.979

(86.205)

(20.558)

Tap (hagnaður) tímabilsins

(936.757)

394.722

89.588

Skipting taps (hagnaðar):

 

 

 

Hlutdeild hluthafa Nýsis

(747.024)

334.039

91.692

Hlutdeild minnihluta í afkomu dótturfélaga

(189.733)

60.683

(2.094)

 

 

 

 

Efnahagsreikningur

30/6/2006

31/12 2005

31.12.2004

Eignir:

 

 

 

Fastafjármunir

30.636.675

15.285.149

9.710.548

Veltufjármunir

4.177.104

1.063.842

284.993

Eignir samtals

34.813.779

16.348.991

9.995.541

 

 

 

 

Skuldir og eigið samtals:

 

 

 

Eigið

3.719.530

3.885.070

2.291.378

Langtímaskuldir

24.147.479

10.728.838

6.982.289

Skammtímaskuldir

6.946.769

1.735.083

721.874

 

 

 

 

Kennitölur og sjóðsteymi

 

 

 

Eiginfjárhlutfall

10,7%

23,8%

22,9%

Eiginfjárhlutfall með víkjandi láni

11,0%

24,5%

24,1%

Veltufjárhlutfall

0,60

0,61

0,39

 

 

 

 

Handbært frá rekstri (til rekstrar)

281.643

(78.355)

28.263

 

 

Árshlutareikningur Nýsis hf er samstæðureikningur Nýsis hf og dótturfélaga.

 

Í lok tímabilsins eru dótturfélögin eftirfarandi: Nýsir fasteignir hf, Fasteignastjórnun ehf. og Stofn fjárfestingarfélag ehf.

 

Dótturfélög Nýsis fasteigna eru: Grípir ehf, Iði ehf, Nýtak ehf, Engidalur ehf, Þekkur ehf, Hafnarslóð ehf, Laugahús ehf., Teknikum ehf., Borgarhöllin hf og Egilshöllin ehf.

 

Dótturfélög Stofns fjárfestingarfélags eru Salus ehf. (50%), Faxafen ehf. (50%), Hraðbraut ehf. (50%), Artes ehf. (81%), Sjáland ehf. (67%) og Mostur (50%).  Mostur er 100% eigandi Gránufélagsins ehf. og 70% eigandi Laxnesbúsins ehf.

 

Önnur dótturfélög Nýsis hf. eru Nysir UK Limited, Nysir Danmark Aps og Nysir Malta Limited.

 

Öll þessi félög innifalin í samstæðureikningi félagsins.

 

Nýsir er eigandi að nokkrum hlutdeildarfélögum.  Má þar nefna Eignarhaldsfélagið Portus, Situs ehf., Fasteignafélagið Lækjarhlíð ehf., Vivus ehf., Heilsuakademíuna ehf. og Austurgata ehf.  Þá keypti Nýsir hf. Mörkina ehf. í apríl 2006.

 

Félagið jók við tekjur sínar vegna einkaframkvæmdar og fasteignareksturs og fóru tekjur af nokkrum eignum og samningum að skila sér að fullu á tímabilinu, einkum í Danmörku og Bret­landi.  Nysir Danmark Aps keypti í febrúar s.l. tvö fasteignafélög í Danmörku, Jehl Aps Tietgens Have og Jehl Aps Atriumhuset og eru kaupin stærsta ástæðan fyrir hækkun á efnahagsreikningi sam­stæðunnar.  Auk þessa var unnið að öflun nýrra verkefna með tilboðsgerð og samningaumleit­unum, bæði hér á landi og erlendis.

 

 

Framtíðaráform

 

Félagið hefur tekist á hendur aukin verkefni á sviði einkaframkvæmdar, fjárfestinga í fasteignum, fasteignastjórnunar og rekstrarverktöku.  Umsvif félagsins eru að aukast mjög hratt og hefur það m.a. sótt mjög fram í Danmörku og Bretlandi.  M.a. hefur félagið gert samning um kaup á meiri­hluta hlutafjár í breska fasteignastjórnunarfélaginu Operon og er velta þess um 6 milljarðar króna á ári.  Einnig hefur félagið unnið að verkefnaöflun á Möltu.

 

Haustið 2006 flytur félagið í nýjar höfuðstöðvar sem eru í byggingu að Reykjavíkurvegi 74, Hafnarfirði, nýr leikskóli verður vígður á Sjálandi í Garðabæ og ný íþróttamiðstöð verður tekin í notkun við Lækjarhlíð í Mosfellsbæ.

 

Mikil uppbygging stendur fyrir dyrum hjá félaginu.  Má þar nefna tónlistar- og ráðstefnuhús, hótel  o.fl. við austurhöfnina í Reykjavík á vegum Eignarhaldsfélagsins Portus ehf., sem Nýsir hf. er 50% eignaraðili að.  Einnig 14 þús. ferm. skrifstofu- og verslunarhúsnæði sem Nýsir hf. mun byggja á reitnum við austurhöfnina.  Þá stendur fyrir dyrum stækkun Egilshallar, áframhaldandi uppbygging íbúða fyrir aldraða hjá Mörkinni ehf. við Suðurlandsbraut 58-62, íbúðabyggingar á vegum Gránufélagsins á Akureyri, uppbygging frístundabyggðar í Hvammsvík í Kjós og Sælingsdal í Dölum.  Nýsir hf. eignaðist nýlega meirihluta hlutafjár í Golf ehf. sem mun byggja upp golfvöll o.fl. austan Þorlákshafnar.

Nýsir hefur ásamt samstarfsaðilum sínum, Operon og danska verktakafyrirtækinu Pihl, lagt fram eitt af tveimur lokatilboðum í byggingu og rekstur 10 skóla í einkaframkvæmd í Skotlandi, og er niðurstöðu verkkaupa beðið. 

 

Áætluð velta Nýsis hf og dótturfélaga á árinu 2006 er um 2.800 milljónir kr.

 

Nánari upplýsingar veitir Stefán Þórarinsson stjórnarformaður Nýsis hf í síma 540-6386 og Sigfús Jónsson framkvæmdarstjóri í síma 540-6385.

 


Back