Á stjórnarfundi Nýsis hf. þann 25. maí 2006 var ákveðið að stækka skuldabréfaflokk
félagsins NYSI 03 1 um 950 milljónir króna að nafnverði en flokkurinn er
skráður í Kauphöll Íslands. Heildarnafnverð
skuldabréfaflokksins er eftir stækkun 1.400 milljónir króna. Lokagjalddagi skuldabréfanna er í júlí
2008. Skuldabréfin voru seld í lokuðu
útboði til fagfjárfesta og var MP Fjárfestingarbanki hf. umsjónaraðili
skuldabréfaútboðsins.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Þórarinsson, stjórnarformaður félagsins í
síma 899-7801 eða 540-6380.