Međfylgjandi er
leiđréttur ársreikningur. Búiđ er ađ
bćta viđ málsgrein í skýringu 4 sem lýtur ađ kaupréttarsamningi
lykilstjórnanda. Hún hljóđar svona:
"Kaupréttarsamningar
framkvćmdastjóra félagsins sem miđast viđ gengiđ 1,00 til 1,08 voru gerđir á árinum
2003 og 2004 og eru innleysanlegir á árunum 2004 til 2009. Framkvćmdastjóri
félagsins hefur ekki enn nýtt sér kauprétt samkvćmt ţessum kaupréttarsamningum.
Heildarfjöldi hluta sem framkvćmdastjóri hefur kauprétt ađ nema 1.155.555 og
kaupverđ ţeirra nemur 1,2 millj. kr."
Afkoma Fiskeldis Eyjafjarđar hf. áriđ 2005
209 milljóna króna tap á rekstrinum
Fiskeldi Eyjafjarđar hf. er gert
upp međ 209 milljóna króna tapi á árinu 2005.
Vergt tap er um 117 milljón króna og veltufé til rekstrar nam 150 milljónum
króna. Til samanburđar var tap félagsins fyrir áriđ áđur 160 milljónir króna,
vergt tap um 32 milljón og veltufé til rekstrar um 69 milljónir.
Slćma afkomu má međal annars rekja til gjaldfćrslu kostnađar í
matfiskeldisstöđ félagsins í Ţorlákshöfn vegna fyrirhugađrar lokunar
stöđvarinnar auk erfiđleika í
seiđaframleiđslu fyrri hluta ársins.
Sjá međfylgjandi fréttatilkynningu á pdf- formi međ yfirliti úr
ársreikningi og greiningu rekstrar á árshelminga.
Rekstur og efnahagur:
Rekstrartekjur félagsins á árinu
2005 námu samtals 120 milljónum króna en áriđ áđur var veltan 182 milljónir.
Vergt tap var 117 milljónir króna en var 32 milljónir áriđ áđur.
Afskriftir voru 30,7 milljónir króna
sem er svipađ og áriđ áđur. Fjármagnsliđir eru neikvćđir um 4,2 milljónir en
voru neikvćđir um 10 milljónir króna á árinu 2004. Áhrif hlutdeildarfélags eru
neikvćđ um rúmar 33,3 milljónir króna en voru neikvćđ um 66,8 milljónir króna í
fyrra.
Félagiđ er gert upp međ tapi ađ
fjárhćđ 209,1 milljónir króna sem er um 49 milljónum verri afkoma en áriđ
áđur. Ţá nam veltufé til rekstrar um
150,1 milljón króna en nam um 69 milljónum í fyrra.
Í árslok námu heildareignir
félagsins 399,9 milljónum króna. Fastafjármunir
voru samtals 273,7 milljónir króna og veltufjármunir 126,2 milljónir
króna. Ţá námu heildarskuldir félagsins
samtals 195,0 milljónum króna og bókfćrt eigiđ fé 204,9 milljónum. Í árslok var veltufjárhlutfalliđ 3,3 og
eiginfjárhlutfall 51,2%.
Hlutafé félagsins var fćrt niđur í
júní um 80% og varđ eftir niđurfćrslu 169,0 milljónir króna. Innborgađ nýtt hlutafé á árinu 2005 nam 116,6
milljónum króna og 15 milljónir voru innborgađar í febrúar á ţessu ári. Hlutafé
félagsins er nú 300,6 milljón.
Horfur í rekstri:
Meginskýringin
á verri afkomu milli ára má rekja til gjaldfćrslu kostnađar í Ţorlákshöfn vegna
fyrirhugađrar lokunar ţar. Velta
félagsins var um 85 milljónum minni en í fyrra sem skýrist af minni söluverđumćtum úr
matfiskeldistöđ félagsins í Ţorlákshöfn og einnig voru seld seiđi fyrir yfir 40
milljónir í upphafi árs 2006 sem voru framleidd í lok árs 2005. Ađ auki hefur hátt gengi krónunnar haft áhrif
á lćkkun tekna. Neikvćđ áhrif
hlutdeildarfélagsins Scotian Halibut voru 33 milljónir króna og er ţađ vegna
niđurfćslu á kröfu á félagiđ og hlutdeildar í afkomu félagsins. Eignarhlutur Fiskeldis Eyjafjarđar hf í
Scotian Halibut er nú bókfćrđur á 5 milljónir króna en auk ţess á Fiskeldi
Eyjafjarđar hf. kröfu á félagiđ sem bókfćrđ er 5 milljónir króna.
Rekstur matfiskeldisins í
Ţorlákshöfn hefur veriđ erfiđur frá upphafi.
Á síđasta ári var tekin ákvörđun um ađ loka stöđinni og hefur veriđ
mikill kostnađur viđ ţađ. Reiknađ er međ
ađ stöđin tćmist í apríl á ţessu ári og
verđur ţá rekstrarkostnađur óverulegur eftir ţađ. Eldisstöđ félagsins í Ţorlákshöfn er til
sölu.
Ákvörđun
stjórnar félagsins um ađ loka matfiskeldisstöđ félagsins í Ţorlákshöfn er liđur
í ţví ađ ţví draga úr áhćttu í rekstrinum og ađ einbeita sér ađ
kjarnastarfseminni sem er framleiđsla seiđa.
Útlit er fyrir ađ erfileikar í
seiđaframleiđslunni síđustu ára séu ađ baki.
Áćtlađ er ađ framleiđa tćp 700.000 seiđi á árinu 2006. Gott útlit er međ sölu á seiđum, ţví eftirspurn
hefur aukist og kaupendum fjölgađ. Í áćtlunum félagsins er reiknađ međ ađ
reksturinn verđi í jafnvćgi árinu 2006, en muni skila hagnađi áriđ 2007.
Nánari upplýsingar veitir framkvćmdastjóri félagsins
Arnar Freyr Jónsson í síma 863 1510.