Stjórn
Nýsis hf samþykkti á stjórnarfundi 11. apríl 2005, ársreikning samstæðunnar fyrir
árið 2004.
Fastafjármunir
nema í árslok 9.711 milljónum kr. og veltufjármunir 285 milljónum kr. Eignir eru samtals 9.996 milljónir kr.
Skuldir og skuldbindingar samstæðunnar nema 7.704 milljónum kr. og eigið fé í
árslok er 2.291 milljónir kr. að meðtaldri hlutdeild minnihluta. Velta samstæðunnar á árinu var 679 milljón kr.
og varð hagnaður af starfseminni sem nam samtals 844 milljónum kr.
Helstu lykiltölur úr samstæðuársreikningi
2004 eru birtar hér að neðan í þús.
króna.:
|
2004
|
2003
|
Rekstrarreikningur
|
(´000)
|
(´000)
|
|
|
|
Rekstrartekjur
|
678.456
|
354.421
|
Matsbreyting fjárfestingaeigna
|
793.205
|
0
|
Rekstrarkostnaður fjárfestingaeigna
|
(39.771)
|
(4.704)
|
Annar rekstrarkostnaður
|
(333.769)
|
(130.389)
|
Rekstrarhagnaður
|
1.098.120
|
219.326
|
Fjármagnsliðir
|
(70.767)
|
(100.671)
|
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga
|
5.396
|
(492)
|
Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta
|
1.032.749
|
118.162
|
Reiknaður tekjuskattur
|
(188.834)
|
(18.318)
|
Hagnaður ársins
|
843.915
|
99.845
|
|
|
|
Skipting hagnaðar:
|
|
|
Hlutdeild minnihluta í afkomu dótturfélaga
|
103.241
|
32.236
|
Hlutdeild hlutahafa Nýsis hf
|
740.674
|
67.608
|
|
843.915
|
99.845
|
|
|
|
Efnahagsreikningur
|
31/12
2004
|
1/1
2004
|
Eignir:
|
|
|
Fastafjármunir
|
9.710.548
|
5.139.734
|
Veltufjármunir
|
284.993
|
155.060
|
Eignir samtals
|
9.995.540
|
5.294.794
|
|
|
|
Eigð fé og skuldir:
|
|
|
Eigið fé
|
2.291.378
|
943.037
|
Langtímaskuldir
|
6.982.289
|
3.171.849
|
Skammtímaskuldir
|
721.874
|
1.179.908
|
Eigið fé og skuldir samtals
|
9.995.540
|
5.294.794
|
|
|
|
Kennitölur og sjóðsteymi
|
|
|
Eiginfjárhlutfall
|
22,9%
|
17,8%
|
Veltufjárhlutfall
|
0,39
|
0,13
|
|
|
|
Veltufé frá rekstri
|
91.098
|
112.744
|
Reksturinn á árinu 2004
Ársreikningur Nýsis hf er samstæðureikningur Nýsis hf og
dótturfélaga. Í árslok eru dótturfélögin
fimm talsins, Nýsir fasteignir hf, Salus ehf, Sjáland ehf, Faxafen ehf og Artes
ehf. Dótturfélög Nýsis fasteigna eru
níu, Grípir ehf, Iði ehf, Nýtak ehf, Engidalur ehf, Þekkur ehf, Hafnarslóð ehf,
Stofn fjárfestingafélag ehf, Vorkvöld ehf og Borgarhöllin hf. Auk þess á Stofn fjárfestingafélag ehf tvö
dótturfélög, Laugahús ehf og Laugakaffi ehf og Borgahöllin hf á eitt
dótturfélag Egislhöllina ehf. Eru öll
þessi félög innifalin í samstæðureikningum.
Í ársbyrjun 2004 tók Heilsumiðstöðin í Laugardal til
starfa sem og Heilsugæslan í Salahverfi Í október s.l. keypti Nýsir hf allt hlutafé
Borgarhallarinnar hf sem er eignar- og rekstraraðili íþróttamiðstöðvarinnar
Egilshallar í Grafarvogi. Auk þessa var
unnið að ýmsum ráðgjafar-verkefnum fyrir fyrirtæki og opinbera aðila, bæði
hérlendis og erlendis.
Breytingar á reikningsskilaaðferðum
Nýsir hf hefur hafið vinnu við upptöku alþjóðlegra
reikningsskilastaðla (IFRS) og hyggst ljúka upptöku þeirra að fullu á árinu
2005. Mesta breyting á reikningsskilunum
samstæðunnar er sú að í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal nr. 40
(IAS) eru fasteignir til útleigu flokkaðar sem fjárfestingaeignir. Þessar eignir eru samkvæmt því metnar á
gangvirði og áhrif þess eru nú færð í reikningsskil félagsins í fyrsta
sinn. Mat á þessum eignum var gert í
fyrsta skipti miðað við 1. janúar 2004.
Þar sem ekki lá fyrir samskonar mat á þessum eignum 1. janúar 2003 eru
þær metnar á bókfærðu verði eins og það var þá. Samanburðartölum í ársreikningi hefur verið breytt
til samræmis við þessar breytingar.
Innréttingar og áhöld sem tengjast fjárfestingaeignunum eru færðar sem
hluti af þeim. Tekjuskattsskuldbindingu
hefur verið breytt til samræmis við nýtt mat eigna.
Önnur áhrif af upptöku alþjóðlegu
reikningsskilastaðlanna verða óveruleg á reikningsskil samstæðunnar.
Framtíðaráform
Félagið hefur tekist á hendur aukin verkefni á sviði
einkaframkvæmdar, fasteignastjórnunar og rekstrarverktöku. Gengið hefur verið
frá samningum við Hafnafjarðarbæ um byggingu og rekstur íþróttahúss við
Lækjarskóla og við Garðabæ um byggingu og rekstur leikskóla á Sjálandi, hvoru
tveggja í einkaframkvæmd og verður íþróttahúsið tekið í notkun á árinu 2005,
auk þess sem starfssemi leiksskólans mun hefjast á árinu. Gert er ráð fyrir örum vexti í starfsemi
Menntaskólans Hraðbrautar,
Heilsugæslunnar í Salahverfi og Heilsumiðstöðvarinnar í Laugardal. Auk þess eru ýmis áform um ný verkefni bæði
innanland og erlendis. Áætluð velta
Nýsis hf og dótturfélaga á árinu 2005 er rúmlega 1.400 milljónir kr.
Nánari upplýsingar veitir Jón Arnar Baldurs,
fjármálastjóri félagsins í síma 540-6380.