Rekstur
Tap
Sparisjóðs Vestfirðinga fyrstu sex mánuði ársins 2003 nam 55,9 millj. kr.,
samanborið við 2,5 millj. kr. hagnað á sama tímabili árið 2002.
Samkvæmt árshlutauppgjöri námu vaxtatekjur
alls 311,1 millj. kr. Vaxtagjöld námu alls 173,1 millj. kr. Hreinar vaxtatekjur
Sparisjóðsins námu því 138,0 millj. kr. en þær voru 134,7millj. kr. á fyrir
sama tímabil á síðasta ári. Aðrar rekstrartekjur námu 77,3 millj. .kr. og
aukast um 9,3 millj. kr. frá því árið áður. Hreinar rekstrartekjur námu 215,3
millj. kr., en þær námu 202,7 millj. kr. á sama tímabili árið áður.
Rekstrargjöld
sparisjóðsins námu 158,0 millj. kr. á tímabilinu en námu 140,1 millj. kr. á
sama tíma árið 2002.
Framlag
í afskriftarreikning útlána nam 125,5 millj. kr., en var 60,0 m.kr. á sama
tímabili árið 2002 og hækkar því um 65.5 millj. kr. á milli tímabila. Framlagið
í afskriftareikning útlána skýrir fyrst og fremst það tap sem á rekstri
sjóðsins á tímabilinu.
Efnahagur
Útlán
sparisjóðsins námu 5.543,6 millj. kr. og aukast um 127,8 millj. kr. frá
áramótum eða um 2,4%. Markaðsverðbréf og eignarhlutir í félögum námu 465,6
millj. kr. og lækka um 110,3 millj. kr., vegna sölu veltuverðbréfa. Allar
eignir sparisjóðsins í skráðum verðbréfum er færðar á markaðsgengi.
Eigið
fé
Eigið
fé Sparisjóðs Vestfirðinga 30. júní 2003 nam 574,2 millj. kr. og víkjandi lán
námu 151,9 millj. kr. eða
samtals
726,1 millj. kr. Eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD-reglum er 10,3% en það var 9,9%
um síðustu áramót.
Annað
Rekstrarumhverfið
fyrstu sex mánuði ársins hefur verið sparisjóðnum erfitt. Framlag í
afskriftareikning
sjóðsins
á fyrri árshelmingi ársins er mun meira en gert hafði verið ráð fyrir, en
áætlun sjóðsins gerir ráð fyrir
að
framlag í afskriftareikning útlána á öllu árinu 2003 yrði um 120,0 millj. kr.
Gert er ráð fyrir að framlag í
afskriftareikning
útlána verði mun minna á seinni hluta ársins og að hagnaður verði af rekstri
sjóðsins á því
tímabili
þó svo ekki náist að fullu að vinna upp tap fyrri árshelmings.
Þrátt
fyrir tap og tímabundna erfiðleika í rekstri sjóðsins er eiginfjárstaða hans
góð. Sjóðurinn er með 726,1
millj.
kr. eigin fé og víkjandi lán og er eiginfjárhlutfall hans er 10,3%, en lágmarks
krafan er 8,0%
eiginfjárhlutfall.
Sparisjóður
Vestfirðinga
Nánari
upplýsingar veitir Angantýr V Jónasson sparisjóðsstjóri, sími 4508100.